Úr sögu Omega
 

Hinn 8. nóvember árið 1991, þá talaði Guð til Eiríks Sigurbjörnssonar, að setja upp kristilega sjónvarpsstöð á Íslandi. Eiríkur sótti um sjónvarpsleyfi og fékk heimild til að sjónvarpa 24 tíma á sólarhring. Eftir 9 mánaða undirbúning, þá hóf sjónvarpsstöðin Omega útsendingar, hinn 28. júlí 1992. 

Í upphafi, þá hafði stöðin aðeins 10 watta sendi, en ári seinna var 1000 watta sendir settur í staðinn og þrír endurvarpssendar. Síðar var settur upp aflmikill sendir á Vatnsendahæð.

Ýmsir þekktir prédikarar hafa heimsótt Ísland, á vegum Omega. Stærstu samkomuherferðirnar voru árin 1994 og 1995, þegar prédikarinn Benny Hinn heimsótti Ísland og þúsundir einstaklinga komu til Krists. 

Í ágúst árið 1998, flutti stöðin stúdíó og skrifstofur sínar í stærra húsnæði að Grensásvegi 8 í Reykjavík.

Nú ná útsendingar stöðvarinnar með sendum á jörðu niðri, til suðvesturhluta landsins og Suðurlands, þar sem um 75% þjóðarinnar býr.

Á dagskrá stöðvarinnar, eru m.a. íslenskar samkomur og spjallþættir.
Einnig er mikið af erlendu efni, frá



Eiríkur Sigurbjörnsson

heimsþekktum sjónvarpsprédikurum eins og Benny Hinn, Joyce Meyer, Robert Schuller o.fl. 

Nokkrum af íslensku spjallþáttunum er sjónvarpað í beinni útsendingu. Áhorfendur eru hvattir til að hringja til stöðvarinnar og leggja fram bænar- og þakkarefni. 

Hinn 1. júní 2002, hóf Omega útsendingar allan sólarhringinn frá Íslandi til meginlands Evrópu, á nýrri gerfihnattarás, sem kölluð er Gospel Channel Europe. Útsendingar Gospel Channel nást einnig mjög vel á Íslandi, aðeins þarf gerfihnattdisk og starfrænan gerfihnattamóttakara.